Myglugreining

Þörf á ástandskoðun getur verið margskonar og höfum við m.a. verið að veita ástandskoðun á mannvirkjum til greiningar á viðhaldsþörf. Með slíkri þjónustu er svo skilað skýrslu yfir þá verkþætti sem þörf er á að viðhalda. Í kjölfar ástandskoðunar er svo oft unnin kostnaðargreining á viðhaldsþörf. Skýrsla er ítarleg og fer yfir þá verkþætti sem þarf að viðhalda strax og hvaða viðhald er væntanlegt næstu 5 árin.
Ástandskoðun er einnig mikilvæg við fasteignakaup. Fasteignakaup er hjá flestum stærsta fjárfesting sem það gerir á lífsleiðinni því er mikilvægt að greina viðhaldsþörf mannvirkis. Oft er einnig hulinn kostnaðar í byggingum útfrá uppbyggingu þeirra. Byggingar eru misdýrar í rekstri og getum við ráðfært fólki hvaða fjárfestingar eru ódýrar í viðhaldi og hverjar eru viðhaldsfrekar.
Einnig bjóðum við upp á sjónskoðun og léttar rakamælingar á mannvirkjum við kaup ef fólk vill einungis skimum.
Senda fyrirspurn

Starfsmenn

Arnar Már Ágústsson

Húsasmíðameistari og byggingafræðingur að mennt. Arnar menntaði sig í VIA University í Danmörku. Þar sérhæfði hann sig í gæðakerfum og verkefnastjórnunn. Við heimkomu vann Arnar við samsetningu gæðakerfa og greiningu á lekavandamálum. Arnar hefur undanfarinn tvo ár starfað á verkfræðistofu og þar hefur hann starfað sem myglusérfræðingur fyrir borg, sveitarfélög og stærri fasteignafélög ásamt ýmsum framkvæmdarráðgjöfum. Arnar hefur einnig starfað fyrir Reykjavíkurborg í gerð útboðsganga og í kjölfar þeirra verið byggingarstjóri eða verkefnastjóra með framkvæmdinni.

Þjónustur

Ástandsskoðun

Þörf á ástandskoðun getur verið margskonar og höfum við m.a. verið að veita ástandskoðun á mannvirkjum til greiningar á viðhaldsþörf. Með slíkri þjónustu er svo skilað skýrslu yfir þá verkþætti sem þörf er á að viðhalda.
Sjá nánar

Myglugreining

Mygla þjónar góðu hlutverki í náttúrunni en þegar hún byrjar að vaxa inn í byggingarhlutum eða á yfirborði byggingarhluta byrjar hún að senda gös og eiturefni í andrúmsloftið sem getur valdið fólki ýmsum heilsuhvillum.
Sjá nánar

Byggingar- og
verkefnastjórnunn

Byggvangur leggur áherslu á að byggingarstjóri sé þriðji aðili og gæti einungis hagsmuna gæða verksins. Byggvangur starfar undir vottuðu og síbættu gæðakerfi þar sem allir samningar og önnur skjöl eru stanslaust uppfært samkvæmt breytingum reglugerða og staðla. Byggvangur tekur að sérbyggingar- og verkefnastjórnunn ásamt ráðgjöf fyrir aðra byggingar- og verkefnastjóra.
Sjá nánar

Útboðsgögn

Þegar leita skal tilboða í framkvæmdir hvort sem þær eru viðhalds eða nýframkvæmdir þá er gott fyrir alla aðila að útboðsgögn og kröfur séu ítarlegar til að fyrirbyggja misskilning og ófyrirséðan kostnað. Byggvangur hefur reynslu í að útbúa og bjóða út stór og smá verkefni. Þá er tengslanet Byggvangs við verktaka gott og einungis leitað til verktaka sem skila af sér gæða verkum.
Sjá nánar

Hönnun og teikningar

Byggvangur tekur að sér hönnun á burðavirki á smærri mannvirkjum. Við höfum einnig verið að taka að okkur undirverktöku í teiknivinnu fyrir hönnuði.
Sjá nánar
Hafðu samband við okkur

Við erum alveg eins spennt fyrir hugmyndinni þinni og þú.

0
Byggvangur ehf.
580908-1280
Hafnarfjörður
arnar@byggvangur.is